Hæstiréttur: Menn hafa ekki rétt á að leita réttar síns meðan mál er til rannsóknar
Almennt
31.05.2012
„Þessi dómur Hæstaréttar er auðvitað mikil vonbrigði og vekur furðu.
Hann segir beinlínis að menn hafi ekki rétt á því að leita réttar síns fyrir dómstólum á meðan stjórnvald
hefur mál til rannsóknar. Þetta er niðurstaðan, þrátt fyrir að Samherji hafi hrakið málatilbúnað Seðlabanka með afar sterkum
rökum. Samherji hefur sýnt fram á að útreikningar Seðlabankans sem aðgerðir hans gegn félaginu byggja á, eru beinlínis rangir.
Hæstiréttir segir fullum fetum að brotið hafi verið á rétti Samherja við málsmeðferðina en engu að síður er málinu
vísað frá dómi,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson eftir að Hæstiréttur vísaði máli félagsins frá
dómi, í dag.