Þungur áfellisdómur yfir stjórnendum Seðlabanka Íslands
Almennt
26.02.2019
- Höfðu í hótunum við bankaráðið
Í dag, 26. febrúar 2019, leit loks dagsins ljós greinargerð bankaráðs Seðlabanka Íslands til forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, sem ráðherrann óskaði eftir 12. nóvember sl.
Í greinargerðinni kemur fram að seðlabankinn hefur ekki einungis beitt fyrirtæki og einstaklinga fordæmalausri og tilefnislausri valdníðslu heldur einnig freistað þess að beita sömu framgöngu gagnvart öðrum stjórnvöldum, Umboðsmanni Alþingis og nú síðast sjálfum forsætisráðherra. Þannig gerði bankinn tilraun til þess að koma í veg fyrir að bankaráðið svaraði bréfi forsætisráðherra með yfirlýsingum og hótunum um að þar væri um brot á trúnaði að ræða.
Bankaráðið og einstakir bankaráðsmenn sem skila sérstökum bókunum, fordæma harðlega með margvíslegum hætti og orðalagi framgöngu seðlabankans í málefnum Samherja og annarra sem urðu fyrir barðinu á bankanum. Fjallað er um lítt dulda misbeitingu valds af hálfu stjórnenda seðlabankans og hversu langt þeir hafa gengið til að freista þess að viðhalda ólögmætum ákvörðunum sínum.
Hér að neðan má lesa nokkur ummæli úr bókunum og niðurstöðum bankaráðsins: