Fréttir

Stórátak gegn fíknivanda. Stofna Samheldni til að auka og bæta þjónustu fyrir fólk í fíknivanda. Fjárfestingu verulega ábótavant.

Samherji stendur að stofnun nýs átakssjóðs sem fengið hefur nafnið Samheldni. Sjóðnum er ætlað að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum hjá þeim aðilum sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi. Samherji mun leggja fram 20 milljónir á ári á næstu fimm árum.

„Sumarstarfsmenn setja skemmtilegan svip á starfsemina“

Á sjötta tug ungmenna eru ráðin til starfa yfir sumartímann í vinnsluhúsum Samherja á Dalvík og Akureyri til að leysa af fastráðið starfsfólk vegna sumarleyfa.

„Besti bitinn“ sló í gegn í sumarbúðum fatlaðra

Sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra á Laugarvatni hafa verið starfræktar í fjóra áratugi og alla tíð notið mikilla vinsælda. Markmið sumarbúðanna er að bjóða fötluðum einstaklingum upp á skemmtilega samveru, hreyfingu, útivist og félagslíf í góðu og öruggu umhverfi.

Traustur rekstur og sterkur fjárhagur hjá Samherja

Rekstur Samherja hf. gekk vel á árinu 2025. Tekjur samstæðunnar námu 78,4 milljörðum króna og hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára.

Kaldbakur EA 1 í flotkví Slippsins á Akureyri

Togarinn Kaldbakur EA 1, bolfisktogari Samherja, hefur verið í flotkví Slippsins á Akureyri undanfarna daga.

Til hamingju með daginn sjómenn!

Samherji sendir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðju í tilefni sjómannadagsins í dag.

„Sjómennskan hefur alla tíð heillað mig“

Gunnar Örn Sigfússon kokkur á togara Samherja, Björgu EA 7, hefur verið viðloðandi sjávarútveg svo að segja allan sinn starfsferil. Hann hefur verið á skipum Samherja í sextán ár.

Samherji og atNorth styðja við stofnun ferðasjóðs fyrir börn í íþróttum á Eyjafjarðarsvæðinu

Samherji og atNorth styðja við stofnun nýs ferðasjóðs til að auðvelda börnum á Eyjafjarðarsvæðinu þátttöku í íþróttastarfi óháð efnahag og búsetu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íþróttabandalag Akureyrar og svæðisfulltrúa ÍSÍ á Norðurlandi eystra.

Samherji og Ice Fresh Seafood áberandi á Seafood Expo Global

Alþjóðlega sjávarútvegssýningin Seafood Expo Global í Barcelona á Spáni stendur yfir dagana 21. – 23. apríl. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum á sviði veiða, vinnslu og sölu sjávarafurða en skipuleggjendur segja að fyrirtæki frá um níutíu þjóðlöndum kynni þar vörur sínar, búnað og þjónustu í samtals níu stórum sýningarhöllum.

Stelpurnar unnu frækinn sigur á Portúgal og stuðningsmenn fengu „Besta bitann af þorskinum“

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér farseðilinn á EM eftir frækinn sigur á Portúgal í hreinum úrslitaleik á Ásvöllum á sunnudaginn. Frítt var á leikinn í boði Samherja og starfsfólk félagsins bauð stuðningsmönnum upp á „Besta bitann af þorskinum“ á leiknum.