Skjót viðbrögð skiptu öllu máli: „Mikill léttir að ekki fór verr“
17.11.2026
Óþægileg sjón blasti við Guðmundi Þ. Jónssyni, skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni EA-11, þegar hann kom niður á bryggju við Krossanes á föstudagskvöldið. Bryggjupollar höfðu gefið sig með þeim afleiðingum að skipið hafði losnað frá og hékk á einni taug að framan.

